Halló við heitum Gylfi Kristinn og Arnar Már

og við erum flottustu bræðurnir í heiminum



Við erum draumabræðurnir Gylfi Kristinn og Arnar Már. Við búum á Akranesi með mömmu og pabba, sem heita Ása Björg Gylfadóttir og Garðar Axelsson. Við erum báðir rosalega góðir og auðvitað langflottastir.

Gylfi Kristinn
Ég fæddist á Sjúkrahúsinu á Akranesi þriðjudaginn níunda ágúst 2005 kl. 15:41. Ég var 50 cm langur og 3430 grömm eða rétt tæpar 14 merkur. Ég lét svolítið bíða eftir mér fór alveg þrettán dögum fram yfir tímann sem átti að fæðast á. En þegar ég lét loks á mér kræla tók það mig ekki nema þrjá klukkutíma og fjögurtíu og fimm mínútur að komast í heiminn. Pabbi var auðvitað með á sjúkrahúsinu en amma Marta var líka viðstödd. Ljósmóðirin mín heitir Anna Björnsdóttir og hún Hafdís Rúnarsdóttir var líka viðstödd. Ég er með blá augu og ljósrautt hár svona eiginlega gulllitað enda er ég algjör gulldrengur.

Ég er í leikskólanum Vallarsel og deildin mín heitir Skarð. Mér finnst gaman í boltaleik, að pússla, í bílaleik og margt margt fleira. Mér finnst líka gaman að leika úti og er algjör orkubolti. Ég er líka Íþróttaálfsaðdáandi númer 1 og auðvitað langbesti stóribróðir í öllum heiminum.

Arnar Már
Ég fæddist á sjálfan bóndadaginn eða aðfararnótt föstudagsins 25. janúar 2008 kl. 5:07 á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Ég var auðvitað langflottasta gjöf sem pabbi gat hugsað sér. Ég var 54 cm langur og 4315 gr. eða rétt rúmar 17 merkur. Ég er með dökkblá augu og brúnt hár og tanaður í drasl. Fæðingin gekk eins og í sögu eftir að mamma mín fékk smá aðstoð við að koma mér af stað. Ljósmóðirin mín heitir Elín Sigurbjörnsdóttir. Pabbi var auðvitað viðstaddur fæðinguna mína og amma Marta líka.

Ég á frábæran stórabróður sem er yndislega góður við mig, kyssir mig og knúsar, heldur stundum á mér og lætur upp í mig snudduna mína en stelur henni jafnframt stundum og smjattar á henni af bestu lyst.





Stjörnumerki Gylfa Kristins - Ljónið
23. júlí - 22. ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.

Stjörnumerki Arnars Más - Vatnsberinn
20. janúar - 18 febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.